Hæ.

Ég heiti Ingeborg. Ég er tveggja barna móðir, og tekur það hlutverk upp nánast allt líf mitt um þessar mundir.Ég elska það, og stundum er það erfitt. Það er allskonar, en í gegnum árin hef ég sett sjálfa mig í gegnum þann skóla að nýta móðurhlutverkið sem grundvöllur þroska og lærdóms. Þegar við verðum mæður umturnast lífs hrynjandinn. Sumir segja að það hægist á lífinu, og aðrir myndu segja að árin hverfa.Það sem við rekumst allar á er að við verjum miklum tíma einar, með eigin hugsunum. Þessar hugsanir, þó þær séu bara í hausnum á okkur, stjórna þær algjörlega hvernig okkur líður í gegnum daginn, og hver upplifun okkar er af þeim aðstæðum sem við erum í.Ég hef upplifað á eigin skinni hvernig það er að geta varla setið upprétt vegna þrálátrar þreytu, sem hefur ekkert að gera með svefn eða hversu úthvíld ég er. Líkami minn var einfaldlega að lesa hugsanir mínar sem ég endurtók daglega, og innri söguþráðinn, og útkoman var mikið orkutap. Það var eins og sama hvað ég borðaði mikið, svaf mikið og fékk alla þá hjálp sem ég þurfti með börnin og dagleg verk, það var eins og orkan komst ekki inn í frumurnar. Hún bara lak út.Ef þú þekkir þetta þá veistu hvað þetta er ömurleg tilfinning, sérstaklega þegar þú veist ekki hvað veldur þessu, og þetta “hefðbundna” virkar ekki.Það sem er auðvitað sérstaklega erfitt er að geta ekki verið í augnablikunum með börnunum sínum, deilt orkunni sem þau vilja mæta okkur í, sérstaklega þegar þú manst ekki eftir liðnum dögum sem eiga að vera æskuminningar barnsins þíns. Þegar þig langar bara að leggjast í korter en heimilið, makinn og börnin þurfa svo mikið á þér að halda. Úff.Ég get sagt með sönnu þakklæti, að ég er komin í gegnum þennan djúpa dal, og ferðalagið var ekki “margra ára endurheimt”, eins og ég hafði séð fyrir mér. Það bað mig hins vegar um að líta almennilega á sjálfa mig og svara stórum spurningum.
Ég hef unnið við ráðgjöf og fræðslu tengt málefnum heilsu kvenna síðan 2021.Það sem konur hafa að segja um mig er að eitthvað virkilega smellur saman hjá þeim eftir samtal sem knýr áfram raunverulega breytingu í líðan eða hegðun. Það sem ég vinn með er samtal, einskonar handleiðslu í átt að þínum eigin lausnum og leiðum.Í mörg ár hef ég verið “ráðgjafinn”, en hef lært af reynslunni að hver og ein kona þarf að fara sína leið, þó að ég þykist vita hvað er best stundum.
Í handleiðslu hjá mér veiti ég mikla speglun, endurgjöf, kraftmiklar og opnandi spurningar sem geta haft snjóbolta áhrif.Í grunninn hjálpa ég þér að sjá fílinn í herberginu, innri hugsanagangur sem þú ert búin að venjast það mikið að þú sérð hann ekki, og einfaldlega sköpum við orku til breytinga með því að “trufla” gamla hugarferla. Að geta aðstoðað mæður við að finna fyrir daglega neistanum sínum, að hafa orku í frumunum sem ber þær í gegnum dagsverkin, skiptir mig gríðarlegu máli.Ef þetta talar til þín, þá veistu hvað þetta skiptir þig miklu máli líka, að geta litið til baka á æsku ár barnanna þinna og ekki bara hugsað, “ég komst í gegnum þetta”, heldur “Ég myndi gera allt til að eiga enn eitt augnablik með æskunni þeirra”. Við mæður gegnum svo gríðarlega mikilvægu hlutverki í fjölskyldu menningunni.Við sköpum þetta, og, þó það sé erfitt að heyra það stundum, þá er það okkar ábyrgð, að halda vel utanum dagana, og fyrst og fremst byrjar það með því að halda vel utanum okkur sjálfar og mæta okkur algjörlega.